Takk, Jacinda...

Nýja Sjáland hefur því miður verið í draumalandi undanfarna mánuði þar sem menn ímynduðu sér að hægt væri að loka þessa veiru úti, "elimination strategy". Þetta hefur verið notað sem afsökun fyrir því að bólusetja hægt. Enn eru nýja sjálendingar mjög aftarlega á merinni hvað varðar bólusetningar og þess vegna er öllu lokað. Hversu lengi þessi lokun varir og hversu miklum skaða hún veldur veit enginn. "Thanks, Jacinda".


mbl.is Nýja-Sjáland framlengir útgöngubann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það virkilega?

https://www.worldometers.info/coronavirus/country/iceland/

DD


mbl.is Stjórnvöld hafi brugðist þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cloud cuckoo land

Ef þessi maður heldur að einhver fari eftir tveggja metra reglu lifir hann í ímynduðum heimi. Ef hann telur að tveggja metra regla hafi einhvern tilgang þegar um er að ræða delta afbrigðið sem berst í loftinu er hann sennilega á villigötum.

"Cloud cuckoo land is a state of absurdly, over-optimistic fantasy or an unrealistically idealistic state where everything is perfect. Someone who is said to "live in cloud cuckoo land" is a person who thinks that things that are completely impossible might happen, rather than understanding how things really are."


mbl.is „Skarpara“ að setja á tveggja metra reglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtnar aðgerðir

Ég á satt að segja erfitt með að sjá tilganginn með þessum aðgerðum. Eins metra fjarlægðarregla er algerlega gangslaus. 200 manna samkomutakmörkun virðist einnig vera furðuleg og tilgangslaus. Smitast Covid ekki ef færri en 200 eru á staðnum? Vonandi fara yfirvöld að haga sér af einhverri skynsemi og gera hluti sem hafa gang og tilgang. Til dæmis:

1. Bólusetja eins marga og hægt er.

2. Banna samkomur þeirra sem eru varnalausir gegn Covid, vegna þess að þeir hafa ekki fengið Covid eða eru ekki bólusettir. Aðrir geta gert það sem þeir vilja, enda er áhættan þá lítil.

3. Vernda þá sem vegna undirliggjandi þátta eru í hættu ef þeir smitast af Covid.

Bann við samkomum ungs bólusetts fólks virðist vera óþörf skemmdarverkastarfsemi.

Að lokum, tveggja metra regla hefur nákvæmlega engan tilgang. Engin rannsókn er til sem sýnir að tveir metrar séu næg fjarlægð til að koma í veg fyrir smit. Það er hægt að setja svona reglu en heldur einhver að fólk muni fara eftir henni? Ekki held ég það. 

Flakk um landið með flugvélum er góð leið til að dreifa veirum og eyða peningum... 


mbl.is 200 manna fjöldatakmarkanir og styttur afgreiðslutími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnalegur fíflagangur

Hvað er eiginlega að þessu liði? Sér það ekki "the big picture"? Eru það einhver "mannréttindi" að fólk ný komið frá útlöndum fái að valsa um og leggja líf fólks í hættu með því að smita það og verða til þess að þörf er á aðgerðum sem hefta frelsi allra til að hafa hemil á veirunni? Þeir sem koma frá útlöndum ættu að þakka kærlega fyrir að vera settir í sótkví, því hver vill valda því að aðrir verði sjúkir, missi frelsi eða jafnvel glati lífinu?

Í Ástralíu hefur tekist að hafa hemil á þessari veiru of þar geta menn ferðast og haldið samkomur að vild, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af smiti. Hvernig fóru þeir að þessu? Jú, þegar fólk kemur frá útlöndum er það einfaldlega sett í stranga tveggja vikna sóttkví. Þeir sem koma eru færðir í gott hótel herbergi og þeir eru það eins lengi og þarf til að halda landinu öruggu. Ef þeir biðja um lykilinn að herberginu sínu fá þeir engan lykil vegna þess að þeir fara ekkert fyrr en þeim er hleypt út af yfirvöldum.

Ef einhverjir telja mannréttindum sínum ógnað vegna þess að þeir þurfi að vera í sóttkví til að vernda annað fólk, þá finnst mér að þeir eigi ekki að vera að ferðast til landsins, varla vilja Íslendingar fá svoleiðis eigingjarna asna til sín hvort sem er, eða hvað?

Auðvitað verður að setja lög sem vernda hagsmuni heildarinnar frá ábyrðarlausum og eigingjörnum einstaklingum, ef þau lög eru ekki nú þegar til staðar.


mbl.is Flokkarnir ekki á einu máli um sóttvarnahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómerkilegur dómur

Það er synd að heyra að dómarar landsréttar séu svona siðlausir. 

"Í dómi Lands­rétt­ar kom fram að ekki færi milli mála að um­mæl­in hefðu falið í sér aðdrótt­an­ir um al­var­leg brot og siðferðis­lega ámæl­is­verða hátt­semi. Hins veg­ar var ekki hjá því litið að fyr­ir lá grun­ur um brotið sem byggður var á ábend­ingu."

Það er nefnilega það. Ég má sem sagt ranglega flytja fréttir um að nafngreindur dómari í landsrétti sé sekur um ýmsa glæpi og að ég geti komist upp með það ef frétt mín er byggð á "ábendingu"? Ég sé ekki betur en að þessu dómur gefi íslendingum frítt spil ef þá langar til að ófrægja einhvern. 

Ég hef grun um að dómarar landsréttar séu samsafn of ösnum og fávitum. Ég hef nefnilega fengið ábendingu um það... 


mbl.is Landsréttur staðfestir sýknudóm í Sjanghæ-máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður leiðarvísir

Ég er viss um að margir einhleypir menn þakki Lindu kærlega fyrir þetta. Nú vita þeir nákvæmlega hvað þeir þurfa til brunns að bera til að hún líti við þeim. Uppskriftin er einföld: "„Hann þarf að vera hár, helst svona yfir 190, það væri mjög heppilegt, dökkhærður, myndarlegur, vel máli farinn, kurteis, heimsmaður, kunna að tríta mig mjög vel og skemmtilegur,“ segir hún og tekur það einnig fram að allur aldur komi til greina en hann megi þó ekki vera eldri en pabbi hennar, sem er 75 ára." 

Ef Linda er heppin er einhver á Íslandi á lausu sem samrýmist uppskriftinni og hefur áhuga á henni. Ég hvet viðkomandi til að bjóða þessari glæsilegu konu út. 

 

 


mbl.is Linda P lýsir eftir kærasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóta bullið

Ég hef mikla reynslu af að umgangast hunda, ég annast þá fyrir dýraverndunarfélag. Ég hef haft þessa tegund og aðrar heima hjá mér. Ég hef rætt um þessa tegund við dýralækna sem sjá marga hunda á dag, þar á meðal þessa tegund. Við höfum öll verið sammála um að þessir hundar eru ljúfustu skepnur, blíðari og skapbetri en gengur og gerist. Dýralæknirinn sagði að hundar hafi glefsað í sig en að það hafi alltaf verið litlir hræddir hundar, til dæmis af Chihuahua tegund. Satt að segja hefur reynsla mín verið sú að hundar eru einstaklingar og hegðun þeirra ræðst frekar að því hvað þeir hafa upplifað á ævinni en hvaða tegund þeir tilheyra.

Það er synd að ætla að banna innflutning á þessum hundi sem er vafalaust orðinn hluti af þeirri fjölskyldu sem á hann. Fáfræði og stjónunaráratta hefur leitt MAST á villigötur.


mbl.is Fær ekki að flytja hundinn inn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þetta "ég"?

Þetta er allt gott og blessað en okkur líður þetur ef þið hættum að berjast við þetta ég. 

Fyrir þá sem vilja hugsa nánar um þetta mæli ég með; https://iai.tv/articles/why-there-is-no-self-a-buddhist-perspective-for-the-west-auid-104

'But, you might say, even if I have no identity over time, I have an identity right now, a synchronic identity. There is something that is me.And it is a single, unitary thing. Buddhists, however, deny this. They urge instead that while you believe that there is a single unitary you, if only for a moment, there is nothing but a set of causally interrelated psychophysical processes and events that are in turn causally related to prior and succeeding such collections. There are perceptions, feelings, personality traits, physical parts, such as hands and a heart, but no self. These parts don't have a unity. You can take some away and still be you. You can replace some, and still be you. You can add new ones, and still be you. And if you take them all away, one by one, until there is no body and no mind left, there is no you remaining."

Með öðrum orðum, hættu að ströggla og njóttu þess að vera til núna.  


mbl.is „Ég get þetta aldrei, það eru allir að dæma mig, ég er alger aumingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju

Mig langar til að óska þessum aðilum til hamingju með árangurinn. Með góðum vilja eru allar götur færar. 


mbl.is Samningar í höfn hjá flugfreyjum og Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband