Mestu mistök Íslandssögunnar?

Vonandi verður þetta mál skoðað ofan í kjölinn. Ég fæ ekki betur séð en að sú ákvörðun að selja bankana hafi verið mestu fjármálamistök Íslandssögunnar. Getur einhver bent á stærri? Það þarf að skoða þetta mál mjög vandlega svo að mistök á borð við þessi verði ekki endurtekin. Það þarf líka að skoða hvort einhverjir hafi hagnast óeðlilega á þessum ósköpum.

Mér finnst erfitt að sjá hvort um er að ræða mistök eða hvort einhver glæpsamlegur ásetningur hafi staðið að baki þegar bankarnir voru seldir. Glæpsamlegur í þeim skilningi að einhverjum aðilum hafi verið færð verðmæti sem voru í eigu ríkisins með óeðlilegum hætti. Eftirfarandi spurningar vakna.

1. Voru bankarnir boðnir út til sölu með eðlilegum hætti eða var einhverjum kaupendum gert hærra undir höfði en öðrum? Ef svo er, hver er skýringin?

2. Gerði seljandinn, ríkið ráðstafanir til að tryggja að þeir sem keyptu þessa banka væri aðilar sem hefðu þekkingu, ábyrgð og síðast en ekki síst fjárhagslegt bolmagn til að tryggja öruggan rekstur í framtíðinni?  Ef ekki, af hverju ekki? Ef ekki, hver er ábyrgur?

3. Högnuðust einhverjir óeðlilega á þessu?

4. Af hverju kjósa einhverjir ennþá stjórnmálaflokk sem var við stjórnvölin þegar þessi mistök voru gerð og er enn ekki búinn að gera upp við þessa fortíð? Finnst þeim gott að þjást?


mbl.is Töpuðu 267,2 milljörðum króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alþingi var að hækka innistæðutryggingar í 100.000 evrur svona til að hafa allt klárt fyrir næst..

GB (IP-tala skráð) 27.6.2012 kl. 21:12

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Þessi mistök eru kjararýrnun fyrir heimilin í landinu .

Hörður Halldórsson, 27.6.2012 kl. 22:32

3 identicon

Heill og sæll Hörður; og aðrir gestir, þínir !

Þakka þér fyrir; vandaða og vel ígrundaða færzlu þína, síðuhafi góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.6.2012 kl. 22:58

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

5. Var almenningi leyft að fá skuldir sínar á hálfvirði eins og nýju bankarnir keyptu þær á?

Guðmundur Ásgeirsson, 28.6.2012 kl. 05:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband