26.3.2021 | 20:04
Ómerkilegur dómur
Það er synd að heyra að dómarar landsréttar séu svona siðlausir.
"Í dómi Landsréttar kom fram að ekki færi milli mála að ummælin hefðu falið í sér aðdróttanir um alvarleg brot og siðferðislega ámælisverða háttsemi. Hins vegar var ekki hjá því litið að fyrir lá grunur um brotið sem byggður var á ábendingu."
Það er nefnilega það. Ég má sem sagt ranglega flytja fréttir um að nafngreindur dómari í landsrétti sé sekur um ýmsa glæpi og að ég geti komist upp með það ef frétt mín er byggð á "ábendingu"? Ég sé ekki betur en að þessu dómur gefi íslendingum frítt spil ef þá langar til að ófrægja einhvern.
Ég hef grun um að dómarar landsréttar séu samsafn of ösnum og fávitum. Ég hef nefnilega fengið ábendingu um það...
Landsréttur staðfestir sýknudóm í Sjanghæ-máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2021 | 03:55
Góður leiðarvísir
Ég er viss um að margir einhleypir menn þakki Lindu kærlega fyrir þetta. Nú vita þeir nákvæmlega hvað þeir þurfa til brunns að bera til að hún líti við þeim. Uppskriftin er einföld: "Hann þarf að vera hár, helst svona yfir 190, það væri mjög heppilegt, dökkhærður, myndarlegur, vel máli farinn, kurteis, heimsmaður, kunna að tríta mig mjög vel og skemmtilegur, segir hún og tekur það einnig fram að allur aldur komi til greina en hann megi þó ekki vera eldri en pabbi hennar, sem er 75 ára."
Ef Linda er heppin er einhver á Íslandi á lausu sem samrýmist uppskriftinni og hefur áhuga á henni. Ég hvet viðkomandi til að bjóða þessari glæsilegu konu út.
Linda P lýsir eftir kærasta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)