Barnalegur fíflagangur

Hvað er eiginlega að þessu liði? Sér það ekki "the big picture"? Eru það einhver "mannréttindi" að fólk ný komið frá útlöndum fái að valsa um og leggja líf fólks í hættu með því að smita það og verða til þess að þörf er á aðgerðum sem hefta frelsi allra til að hafa hemil á veirunni? Þeir sem koma frá útlöndum ættu að þakka kærlega fyrir að vera settir í sótkví, því hver vill valda því að aðrir verði sjúkir, missi frelsi eða jafnvel glati lífinu?

Í Ástralíu hefur tekist að hafa hemil á þessari veiru of þar geta menn ferðast og haldið samkomur að vild, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af smiti. Hvernig fóru þeir að þessu? Jú, þegar fólk kemur frá útlöndum er það einfaldlega sett í stranga tveggja vikna sóttkví. Þeir sem koma eru færðir í gott hótel herbergi og þeir eru það eins lengi og þarf til að halda landinu öruggu. Ef þeir biðja um lykilinn að herberginu sínu fá þeir engan lykil vegna þess að þeir fara ekkert fyrr en þeim er hleypt út af yfirvöldum.

Ef einhverjir telja mannréttindum sínum ógnað vegna þess að þeir þurfi að vera í sóttkví til að vernda annað fólk, þá finnst mér að þeir eigi ekki að vera að ferðast til landsins, varla vilja Íslendingar fá svoleiðis eigingjarna asna til sín hvort sem er, eða hvað?

Auðvitað verður að setja lög sem vernda hagsmuni heildarinnar frá ábyrðarlausum og eigingjörnum einstaklingum, ef þau lög eru ekki nú þegar til staðar.


mbl.is Flokkarnir ekki á einu máli um sóttvarnahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fullfrískt fólk smitar ekki frá sér.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2021 kl. 19:57

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

https://www.nature.com/articles/d41586-020-03141-3

Hörður Þórðarson, 7.4.2021 kl. 20:21

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ahhh... þú ert svona. Allt í lagi, ég skal þá orða þetta nákvæmar til að þóknast þér.

"Ósmitað, fullfrískt fólk, smitar ekki frá sér."

Nógu skýrt?

Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2021 kl. 20:34

4 Smámynd: Hörður Þórðarson

Í þessu liggur einmitt vandinn, Guðmundur. Fólk getur verið smitað án þess að vita af því. Fólk sem kemur hingað til Nýja Sjálands verður að fara í COVID próf áður en það fer um borð í flugvélar á leið hingað. Síðan kemur sammt í ljós að margir sýna smit eftir nokkra daga þegar hingað er komið. Sem betur fer eru þessir einstaklingar þá í sóttkvi og geta því ekki smitað aðra. Ef þeir væru ekki settir í sóttkví væru Nýja Sjálendingar á sama báti og önnur lönd sem hafa ekki kunnað að höndla þessa veiru.

Það stoðar lítt að vera endalaust að loka fólk inni og banna samkomur ef veirunni er síðan leift að streyma inn í landið um landamæri. Þessar lokanir, "lock down", kosta mikið og það má með sanni segja að þær hefti mannréttindi fólks. Sóttkví í tvær vikur fyrir fólk sem er að koma inn í landið eru smámunir samanborið við að loka heilu samfélagi og að vera að væla um slíkt, "excuse my language," er "entitled bullshit."

Hörður Þórðarson, 7.4.2021 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband