Margir sadistar á Íslandi?

Nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði. Ekki hafði mér dottið í hug að sadismi væri jafn útbreyddur á Íslandi og þessi skoðanakönnun virðist sýna. Heil 62% þjóðarinnar vilja pína ÓRG og hafa láta hann sitja áfram. Sú seta getur varla verið annað en kvalræði í ljósi þess sem undan er gengið. Getur verið að þeir vilji refsa honum fyrir eitthvað? Hvað gæti það verið?

Kannski hef ég tekið rangan pól í hæðina. Er hugsanlegt að 62% þjóðarinnar séu masochistar? Ég trúi því vart að þeim finnist gott að hafa Ólaf yfir sér svo líkast til vilja þeir láta kvelja sig...

Margt er skrýtið í þessum heimi.


mbl.is Þriðjungur vill forsetann frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Hvernig er veðrið?

Anna Guðný , 8.11.2009 kl. 19:27

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

Tólf stiga hiti, lítilshilsháttar rigning og logn, aldrei þessu vannt. Takk fyrir innlitið

Hörður Þórðarson, 8.11.2009 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband