31.5.2015 | 18:53
Þetta eru heilagir menn!
Ég óska Bolla til hamingju með það að vera svona heilagur. Ég óska honum líka til hamingju með það að geta látið þetta út úr sér með "straight face" og ég óska þeim sem hlýddu til hamingju með það að geta haldið aftur af ælunni, ef þeim þá tókst það. Ég er því miður ekki í þeim hópi og þarf því að fara að hreinsa ógeðið upp.
"Ég og Kári lærðum báðir erlendis en við vorum ekkert að hugsa sérstaklega um tekjurnar þegar við snerum aftur heim, heldur framtíðarsamfélagið. Þá var verið að gera hlutina betur í dag en í gær og við höfðum trú á samfélaginu, segir Bolli."
"Are you serious?" Væri ég launamauður á íslandi, strugglandi á meðallaunum vekti þetta ekki neina sérlega hrifningu hjá mér.
http://www.dv.is/frettir/2014/2/5/graedir-milljarda-i-sochi-og-geymir-peninga-i-skattaskjolum/
"Bolli Héðinsson aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, stýrir sænsku eignarhaldsfélagi sem græðir milljarða á framkvæmdum vegna Vetrarólympíuleikanna í Sochi."
http://www.visir.is/hvers-vegna-eg-styd-icesave/article/2011110319028
![]() |
Háskólahugtakið útþynnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2015 | 22:07
Bólu bull
Slæm húð er oftast afleiðing af slæmu mataræði. Að vera að leita til lækna og undirgangast einhverja meðferð er sóun á tíma og peningum. Fólk sem er ekki alltaf að úða í sig ruslfæði er yfirleitt með fína húð og þarf ekki "húðslípun, sýrumeðferð og nálastungumeðferð". Borðaðu bara almennilegan mat og þá kemur þetta af sjálfu sér.
![]() |
Fullorðinsbólur að verða algengari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.5.2015 | 19:17
Mikil fullkomnun
Þap er mikil fullkomnun á ferðinni þarna. Það verður sennilega met aðsókn í veðurfræði nám eftir að þessi frétt var birt.
![]() |
Fullkomin og óvenju djúp helgarlægð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2015 | 19:18
Af hverju bara 5 ára vegabréf?
Finnst engum það skrítið að íslendingar skuli vera með 5 ára vegabréf og þurfa að bera allan þann kostnað og óhagræði sem því fylgir? Hvaða mannvitsbrekka var það sem ákvað að hætta að vera með 10 ára vegabréf? Mikki Mús? Bakkabræður?
5 ára vegabréf dugar varla nema í 4 og hálft ár vegna þess að sum lönd krefjast þess að vegabréf þeirra sem ferðast þangað skuli vera gilt í minnta kosti hálft ár.
Flestar siðmenntaðar þjóðir eru með 10 ára vegabréf. Af hverju ekki íslendingar? Eru þeir ekki siðmenntaðir? Er þetta einfaldlega vegna heimsku eða liggur eitthvað annað hér að baki?
![]() |
Hafa fengið nóg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)