4.9.2011 | 09:39
Undarleg umræða. Eru kínverjar herraþjóð?
Ég lít svo á að rétt sé að krefjast sanngirni og jafnræðis í samskiptum fólks og svokallaðra þjóða. Ef íslendingur má kaupa jörð í kína, þá ætti kínverji að mega kaupa jörð á Íslandi. Mér hefur verið sagt að kínverjar hafi strangar reglur sem banna "útlendingum" að kaupa land á því svæði sem kallast Kína. Meðan svo er tel ég ófært að íslendingar geti heimilað kínverjum að kaupa land á Íslandi. Rétt skal vera rétt og sanngjarnt sanngjarnt. Jafnræðis skal gætt.
Einu rökin sem ég get séð fyrir því að gæta ekki jafnræðis meðal þjóða eru þau að önnur þjóðin sé einhvers konar "herraþjóð" en hin þjóðin undir hana sett. Svo virðist að Ólafur líti á kínverja sem "herraþjóð" yfir íslendingum. Annars myndi hann ekki fagna þessum kaupum...
Ef þú horfir á mynd af jörðinni úr geimnum, hvar eru þá landamærin? Hvergi, þessi landamæri eru eingöngu til í huga fólks. Fjarlægðu þau úr huga þínum og þau hætta að vera til. Á sama hátt eru þessar svokölluðu þjóðir hugarburður. Við eigum öll sameiginlega forfeður sem voru uppi mjög nýlega í jarðsögunni.
![]() |
Ólafur Ragnar skipti um skoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.9.2011 | 21:45
Skrýtin stjórn
Í einu orðinu segjast þeir vilja auka fjárfestingar en í hinu orðinu hækka þeir skatta á fjármagnstekjur. Hvort vilja þeir þessar fjárfestingar eða ekki? Þeir gera það sem þeir geta til að stuðla að fjármagnsflótta og refsa þeim sem vilja fjárfesta. Hvernig stendur á því að þeir gera það á sama tíma og þeir segjast vilja auka fjárfestingar? Kannski vilja þeir að Kínverjar og arabískir sjeikar fjárfesti og eignist þannig saman saman landið meðan íslendingum er haldíð í fátækt og í þræladómi "velferðarkerfisins".
Ef kínverji fjárfestir á Íslandi, er hann þá rukkaður um 20% fjármagnstekjuskatt?
Í rauninni langar mig til að vita hvort þeir sem setja í ríkisstjórn íslands eru vanhæfir rugludallar sem vita ekki hvað þeir eru að gera eða hvort eitthvað annað liggur að baki.
![]() |
Ísland í neðsta sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)