26.2.2011 | 20:10
Væri nær að banna fáfræði og heimsku
Þessu ágæta fólki væri nær að banna fáfræði og heimsku. Hemska brenglar sýnina miklu meira en sundgleraugu geta nokkurn tíma gert, eins og þessi furðulega frétt sannar.
Banna sundgleraugu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hefði nú haldið að klór í augun meiddi börnin líka, oftar og meira en að toga gleraugun út og láta teygjuna skella þeim í andlitið á sér.
Arngrímur Stefánsson, 26.2.2011 kl. 21:03
Og svo kemur til með að vera offjölgun á slysum fullorðinna í náinni framtíð.
Ástæða, jú það var enginn sem fékk að reka sig á hættur sem krakki og lærði þar af leiðandi ekkert annað en það sem var matreitt ofaní þá inná lokuðum skólastofum...
Mikið á maður það gott að hafa fengið að vera frjáls með svo margt sem krakki. Enda er það svo að maður lærði töluvert á því, eitthvað sem nútímabörn gera ekki þar sem þeim er haldið á malbikinu, í ofvernduðu umhverfi...
Kaldi
Ólafur Björn Ólafsson, 26.2.2011 kl. 21:27
sósialism = forræðishyggja - algjörlega óþolandi samfélag.
v.jóhannsson (IP-tala skráð) 27.2.2011 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.