4.12.2014 | 17:59
Réttur mæðra?
"Ef konan hefði verið sakfelld hefði það getað rutt brautina fyrir ákæruvaldið til þess að ákæra fleiri konur fyrir hluti sem þær gera á meðgöngu."
Ber að skilja þetta þannig að glæpir gegn ófæddum börnum eru svo algengir að ef þessi kona hefði verið sakfelld hefðu allt of margar fylgt í kjölfarið og réttarkerfið hefði ekki ráðið við það? Er það ástæðan fyrir því að hún var ekki ákærð?
"Baráttumenn fyrir réttindum mæðra fagna þó úrskurðinum."
Þeir vilja sem sagt berjast fyrir "rétti" mæðra til að valda börnum sínum ævilöngu tjóni?
Frá mínum bæjardyrum séð hefur kona þessi drygt alvarlegan glæp og það er henni og öðrum fyrir bestu, ekki síst ófæddum börnum, að henni verði refsað fyrir hann. Er eigingirni þeirra sem "berjast fyrir rétti mæðra" virkilega svo mikil að þeir telja mikilvægara að vernda rétt mæðra til að vera á fylleríi en að vernda barnið fyrir því að líf þess sé eyðilagt? Hvers konar skepnur hugsa svona?
Drakk átta bjóra og hálfan vodka pela | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér. Ég hélt alltaf að réttindi eins takmörkuðust við að ganga ekki á rétt annara. Barn í móðurkviði er greinilega einskis metið í þessu réttarkerfi.
Mér er nær að halda að mönnum yrði refsað fyrir svona meðferð á dýrum.
Landfari, 5.12.2014 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.