Til hamingju, Malín

Mig langar til að óska Malín til hamingju með það að komast út úr þessum söfnuði og að segja frá reynslu sinni. Vonandi kemur hún upplýsingum til yfirvalda um þá sem tilheyra söfnuðinum og hafa gerst brotlegir við lög svo að hægt verði að refsa þeim á viðeigandi hátt. Ef einhverjir aðrir vita af glæpsamlegu athæfi gangnvart börnum ættu þeir að hafa samband við lögreglu strax. Þeir sem gera það ekki bera þunga ábyrgð.

"Þeir brugðust ókvæða við og sögðu að ég skyldi treysta á söfnuðinn og Guð." Þeir sem brjóta á börnum og blanda síðan Guði í málið eru ljótu kvikindin. Ef einhverjir eiga eftir að brenna í helvíti, þá eru það þeir sem með ásetningi og kerfisbundið níðast á öðrum og þykjast svo vera heilagur Guðs menn. Það er ekki hægt að komast mikið neðar.


mbl.is Malín Brand um lífið í Vottum Jehóva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru heilagir menn!

Ég óska Bolla til hamingju með það að vera svona heilagur. Ég óska honum líka til hamingju með það að geta látið þetta út úr sér með "straight face" og ég óska þeim sem hlýddu til hamingju með það að geta haldið aftur af ælunni, ef þeim þá tókst það. Ég er því miður ekki í þeim hópi og þarf því að fara að hreinsa ógeðið upp.

"Ég og Kári lærðum báðir er­lend­is en við vor­um ekk­ert að hugsa sér­stak­lega um tekj­urn­ar þegar við sner­um aft­ur heim, held­ur framtíðarsam­fé­lagið. Þá var verið að gera hlut­ina bet­ur í dag en í gær og við höfðum trú á sam­fé­lag­inu,“ seg­ir Bolli."

"Are you serious?" Væri ég launamauður á íslandi, strugglandi á meðallaunum vekti þetta ekki neina sérlega hrifningu hjá mér.

http://www.dv.is/frettir/2014/2/5/graedir-milljarda-i-sochi-og-geymir-peninga-i-skattaskjolum/

"Bolli Héðinsson aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, stýrir sænsku eignarhaldsfélagi sem græðir milljarða á framkvæmdum vegna Vetrarólympíuleikanna í Sochi."

http://www.visir.is/hvers-vegna-eg-styd-icesave/article/2011110319028

 


mbl.is „Háskólahugtakið útþynnt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bólu bull

Slæm húð er oftast afleiðing af slæmu mataræði. Að vera að leita til lækna og undirgangast einhverja meðferð er sóun á tíma og peningum. Fólk sem er ekki alltaf að úða í sig ruslfæði er yfirleitt með fína húð og þarf ekki "húðslíp­un, sýrumeðferð og nála­stungumeðferð". Borðaðu bara almennilegan mat og þá kemur þetta af sjálfu sér.


mbl.is Fullorðinsbólur að verða algengari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil fullkomnun

Þap er mikil fullkomnun á ferðinni þarna. Það verður sennilega met aðsókn í veðurfræði nám eftir að þessi frétt var birt. cool


mbl.is Fullkomin og óvenju djúp helgarlægð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju bara 5 ára vegabréf?

Finnst engum það skrítið að íslendingar skuli vera með 5 ára vegabréf og þurfa að bera allan þann kostnað og óhagræði sem því fylgir? Hvaða mannvitsbrekka var það sem ákvað að hætta að vera með 10 ára vegabréf? Mikki Mús? Bakkabræður?

5 ára vegabréf dugar varla nema í 4 og hálft ár vegna þess að sum lönd krefjast þess að vegabréf þeirra sem ferðast þangað skuli vera gilt í minnta kosti hálft ár.

Flestar siðmenntaðar þjóðir eru með 10 ára vegabréf. Af hverju ekki íslendingar? Eru þeir ekki siðmenntaðir? Er þetta einfaldlega vegna heimsku eða liggur eitthvað annað hér að baki?


mbl.is Hafa fengið nóg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Welcome to the real world

"Það er ekki eðli­legt að um­sækj­end­ur að starfi séu metn­ir vegna kyns eða út­lits um­fram raun­veru­legr­ar getu til að sinna því starfi sem sótt er um"

Það er víst eðlilegt og það fer algerlega eftir því starfi sem um er að ræða. Ef ég er til dæmis að selja einhverja vöru, þá myndi ég ekki velja sölufólk án tillits til kyns eða útlits. Sumar vörur er auðveldast að selja ef sætir strákar eru sölumenn en aðrar eru léttari í sölu ef sætar stelpur selja þær. Svona er þetta bara, hvort sem fólki líkar það betur eða verr.

Þetta er staðreynd og það er einfaldlega barnaskapur og fíflaganur að reyna að halda öðru fram. Konur gera suma hluti betur en karlar og öfugt. "Vive la defference"!


mbl.is Áhyggjur af kynjuðum útlitsstöðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kleppsvinna

Þetta minnir á geðveikrahæli þar sem sjúklingarnir fengu þá vinnu að færa sand fram og tilbaka milli staða. Þegar einhver þeirra sá að þetta var fullkomlega tilgangslaust var hann útskrifaður, enda nú talinn heill á geði.

Er ekki kominn tími til að hætta þessari sturlun? Ef ég ætti heima í Vestmannaeyjum myndi ég helst vilja að þessari viltleisu væri hætt. Í staðinn væri stofnaður sjóður og greitt í hann jafn miklum peningum og núna er eytt í að moka sandi. Síðan yrði þessum peningum skipt jafnt niður á eyjamenn og þeir fengju greitt úr sjóðnum einu sinni á ári. 

Þetta yrði ágætis skaðabót fyrir lélegar samgöngur og sá stjórnmálamaður sem kæmi þessi kerfi á gæti kannski notað það til að kaupa eitthvað af atkvæðum.


mbl.is Höfnin er „stútfull af sandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5 einkenni dækjunnar?

Ég hlakka til að sjá frétt um 5 einkenni dækjunnar. En bíddu við, kannski væri þannig frétt ekki mjög PC... Hvernig skyldi stand á því að það er allt í lagi að tala svona um karlmenn en ekki konur?

Ég skora á Smartland. Þetta liti svona út:

Þær eru kallaðar sjálfs­dýrk­end­ur, nars­issit­ar, dækjur, karlabós­ar, karlaakonur... Í stuttu máli; konur sem meina ekk­ert með þessu, eru aðeins að reyna að kom­ast yfir sem flest­a karla til að draga úr eig­in ómeðviðtaða óör­yggi. 

Þetta er vitað mál: Ef það er á allra vör­um að hún sé dækja þá skaltu ekki halda mikið lengra. Sum­ar konur breyt­ast en fæst­ar gera það. Ef hún er með slóð af svekkt­um strákum á bak við sig þá eru ekki mikl­ar lík­ur á því að þú sért að fara að breyta þessu. Sparaðu bæði tím­ann og ork­una og láttu hana bara róa. 

Er ekki kominn tími til að báðum kynjum sé gert jafn hátt undir höfði? Ég bara spyr, er þetta ekki 2015?

 


mbl.is 5 einkenni flagarans - Hann er bara að nota þig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólguþjóðfélag

Á Íslandi er hugunarháttur fólks ennþá í verðbólgu farinu og verður líklega áfram. Ég sé ekkert sem bendir til þess að fólk komist upp úr því fari. Í flestum köndum þykir mikið að krefjast 5% launahækkana en á Íslandi er það 50%. Hvaða afleiðingar hefur þessi hugsunarháttur?

1. Verðbólgan fer að stað.

2. Vextir á óvertryggðum lánum hækka gríðarlega.

3. Ekki er hægt að taka upp gjaldmiðil á borð við efru vegna þess að aginn sem þarf til þess er ekki fyrir hendi. Laun myndu líklega halda áfram að hækka í efrum, atvinnurekendur hefðu ekki efni á að greiða launin og atvinnuleysi yrði afleyðingin. Svona er þetta til dæmis á Spáni.

 

Laun hækka um 50%, verðlag um %50 og lán um 56% en er það svona sem fólk vill hafa hlutina? Hjakka alltaf í sama farinu.


mbl.is Alvarleg staða blasir við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okurlán

Þetta eru okurlán og ég ráðlegg námsmönnum og vandamönnum þeirra að forðast þetta eins og heitan eldinn. Ég ráðlegg fólki frekar að fá sér vinnu með námi, taka lán hjá LÍN og lifa eins sparlega og kostur er. Annars verður erfitt að koma undir sig fótunum að námi loknu, ég tala nú ekki um ef eitthvað verður til þess að námsmaðurinn verður að hætta í námi.


mbl.is Ekki í samkeppni við LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband