Far vel

Íslendingar eru ekki sjálfstæð þjóð. Ástæðan er ekki skortur á her, heldur sú að íslendingar eru búnir að gera sig fjárhagslega háða öðrum. Leggja ber allt kapp á að brjóta af sér þau bönd.

Hvað varnir landsins varðar, gangvart einhverjum sem raunverulega hefði áhuga á að gera innrás inn í landið, þá er sá land, sjó og flugher sem þyrfti til að koma við einhverjum skynsamlegum vörnum óralangt frá því að vera raunhæfur kostur fyrir gjaldþrota 300.000 manna þjóð svo við skulum bara gleyma því.

Ég fagna því heils hugar að sú sýndarmennska, og sá flottræfilsháttur sem  tengdist varnarmálastofnun er nú liðinn undir lok, far vel.

Að lokum, ef einvher spilling fór fram innan veggja þessarar stofunanar bera að rannsaka hana og refsa þeim seku.


mbl.is Varnarmálastofnun lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"ef einvher spilling fór fram innan veggja þessarar stofunanar bera að rannsaka hana og refsa þeim seku. "

Hahaha!  Yeah, right.

Ásgrímur Hartmannsson, 5.12.2009 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband