18.5.2011 | 14:48
Hækkum skatta og leiðréttum kjörin!
Það er varla að ég trúi eigin augum þegar ég les þessa frétt. Forstöðumenn ríkisstofnana voru lækkaðir í launum! Ég verð að segja að mér finnst þetta alveg makalaust, sérstaklega ef litið er til afkasta þessa fólks og þeirra gæða sem það skilar til samfélagsins. Vanþakklætið, já beinlínis vanvirðingin er þyngri en tárum taki.
Undanfarin ár hefur sá árangur náðst hjá mörgun ríkistofnum að það sem áður rúmast í einni skúffu er orðið að deild(um) með starfsliði og deildarstjóra. Til að halda utan um þetta og brýn verkefni sem skapast hafa myndast nýjar deildir, jafnvel heilar nýar stofnarnir með nýjum forstöðumönnum. Verðmætin sem þetta fólk skilar í þjóðarbúið, bæði þegar litið er til tekna og til þekkingarauka fer ekki fram hjá einu einasta mannsbarni á landinu og þakklætið lýsir úr hverju andliti.
Það er þess vegna bjargföst trú mín að landsmenn rísi upp, allir sem einn og segji: "Vér mótmælum allir, og krefjumst þess að vaskurinn hækki í 30% og lagður verði sérstakur 5% aukaskattur á öll laun sem renni síðan beint til forstöðumannana." Þá aðeins verður tryggt að haldið verði áfram á sömu braut, stofnanirnar efldar og margfaldaðar, landsmönnum til ævarandi sóma.
Að lokum, dettur nokkru mannsbarni í hug að þessir forstöðumenn geti dregið fram lífið af þeim lúsarlaunum sem þeim eru ætluð? Eiga þeir að lifa á kartöflum og aka um á 20 ára gömlum bíldruslum? Ekki aldeilis, Benz skulu þeir fa og herramannsmat í hvert mál.
Þegar ég hugsa um þetta líður mér svipað og sú tilfinning sem fram kemur á þessu myndbandi:
http://www.youtube.com/watch?v=iaB40TLQE8M
Launalækkanir verði afturkallaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2011 | 22:55
Ljóta bullið
Í mínum huga hafa stjórnvöld Bandríkjanna fyrir löngu síðan glatað sínum trúverðugleika. Þessi sorglegi farsi verður vafalaust til þess að augu fleirri opnast.
Vinnubrögðin voru ömurleg. Getur ekki ríkasta land í heim gert betur en að photshoppa gamla mynd af karlinum?!? Það bætir ekki úr skák að þeir segja síðan að þeir hafi sökt líkinu í sæ. Hvað skyldu þeir hafa eitt miklum peningum í þetta rugl?
Þó að þetta sé auljóslega lýgi, þá vekur þetta til umhugsunar. Viljum við lifa í heimi þar sem drápsveitir geta ferðast um og skotið fólk án dóms og laga, í hvaða landi sem er? Eru þetta ekki morðingjar sem ættu að eyða afgang ævinnar í fangelsi? Hvað með stríðsglæpamenn eins og Bush og Blair? Er í góðu lagi að einhver fari heim til þeirra og skjóti þá nokkrum sinnum í hausinn? Ekki finnst mér það og mér finnst að jafnt eigi að ganga yfir alla slíka. Það á að draga þá fyrir dóm, dæma þá og úthluta síðan viðeigandi refsingu.
Sýndu bin Laden látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2011 | 20:34
Dæmigerður fíflagangur
Meðan margir á Íslandi hafa ekki til hnífs og skeyðar eru Íslendingar ennþá allt of góðir til þess að veita erlendum "auðmönnum" ríkisborgararétt. Er einhver glóra í þessu, þegar Íslendingar hafa samþykkt að veita hverjum sem er frá Evrópu leyfi til að koma til Íslands, búa þar og vinna?
Ef einhver hefur ekki efni á mat á Íslandi, ekki efni á að klæða sig, ekki efni á að fara til tannlæknis, ekki efni á að keyra bíl, og svo framvegis, þá legg ég til að sá hinn sami bugti sig og beygi og þakki stjórnvöldum fyrir greiðann því þau bera svo sannarlega ábyrgð á því ömurlega ástandi sem nú ríkir.
Ég velti því fyrir mér hversu lengi almenningur á Íslandi mun sætta sig við að vera í þrældómi fyrir fólk sem hefur sambönd, vini, stundar pólitík en framleiðir ekkert annað en heitt loft og froðu meðan það leggur stein í götu þeirra sem vilja fjárfesta og byggja upp.
Fá ekki ríkisborgararétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.4.2011 | 14:21
Sannleikur og lýgi
Ert þú lifandi eða dauður? Vakir þú eða sefur? Þræll eða sjálfs þíns herra?
Úr ágætri bók Don Miguel og Don Jose Ruiz, "The Fifth Agreement":
"Í sögunni um Adam og Evu er talað um samskipti þeirra við snák þann sem bjó í tré sannleikans. Snákurinn var fallinn engill sem talaði tungum tveim. Hann var prins lyganna en Adam og Eva voru sakleysingjar. Snákurinn sagði við okkur: "Viljið þið vera eins og Guð?" Einföld spurning, en í spurningunni felst lýgi. Ef við hefðum sagt nei takk, við erum Guð. Þá værum við ennþá í paradís. Við svöruðum hins vegar: "Já, okkur langar til að vera eins og Guð". Við sáum ekki lýgina, við bitum í ávöxtinn og við létum lífið."
Þegar við trúum þessari lýgi förum við að leita að Guði. Við þurfum kirkjur og presta til að komast í samband við hann. Við þurfum að fórna og þjást. Lýgin heldur áfram að vinda upp á sig.
Vaknaðu upp frá þessum vonda draumi og vertu velkominn í paradís. Eini sannleikurinn sem þú þarft að vita er að sjónarspil lífsins er í eðli sínu fullkomið. Við erum hins vegar meistarar í þeirri list að gera lífið að helvíti með þeim lygum sem við segjum okkur sjálfum. Ef þú gerðir eitthvað slæmt á lífsleiðinni eða einhver gerði þér eitthvað, þá gerðist það þá. Það gerðist og það var sárt. Núna er það hins vegar ekkert annað en vondur draumur. Réttlæti felur það í sér að þú borgir fyrir þau mistök sem þú hefur gert, einu sinni. Þér er misboðið og þú þjáist, einu sinni. Þú ert búinn að borga, svo hættu því núna. Réttlætinu hefur verið fullnægt. Fortíðin er í rauninni lýgi.
Vaknaðu, og hættu að ljúga.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2011 | 20:43
Ríki Guðs er eins og...
Úr Guðspjalli Tómasar:
(97) Jesus said, "The kingdom of the father is like a certain woman who was carrying a jar full of meal. While she was walking on the road, still some distance from home, the handle of the jar broke and the meal emptied out behind her on the road. She did not realize it; she had noticed no accident. When she reached her house, she set the jar down and found it empty."
Ef þú getur skilið hvað Jesú á við með þessu opnast þér margar dyr.
Úr demants sútrunni:
Chapter 32.
Buddha continued:
"Subhuti, if anyone gave to the Buddha an immeasurable quantity of the seven treasures sufficient to fill the whole universe; and if another person, whether a man or woman, in seeking to attain complete Enlightenment were to earnestly and faithfully observe and study even a single section of this Sutra and explain it to others, the accumulated blessing and merit of that latter person would be far greater."
"Subhuti, how can one explain this Sutra to others without holding in mind any arbitrary conception of forms or phenomena or spiritual truths? It can only be done, Subhuti, by keeping the mind in perfect tranquility and free from any attachment to appearances."
"So I say to you -
This is how to contemplate our conditioned existence in this fleeting world:"
"Like a tiny drop of dew, or a bubble floating in a stream;
Like a flash of lightning in a summer cloud,
Or a flickering lamp, an illusion, a phantom, or a dream."
"So is all conditioned existence to be seen."
Thus spoke Buddha.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2011 | 20:10
Væri nær að banna fáfræði og heimsku
Banna sundgleraugu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.12.2010 | 09:37
Sjötti leiðtoginn
Gleðilegt ár öllsömul, og kærar þakkir til allra sem nennt hafa að lesa þetta ómerkilega blogg.
Mig langar til að segja ykkur frá sjötta leiðtoganum.
Dag nokkurn sagði Hong, fimmti leiðtoginn við lærisveina sína: "Kominn er tími til að velja eftirmann minn. Semjið texta fyrir mig og ef textinn sýnir að höfundurinn hafi náð fullum skilningi mun ég veita honum skikkju mína og gera hann að sjötta leiðtoganum, fljýtið ykkur nú!"
Lærisveinarnir ákváðu að Shen nokkur sem var talinn standa fremstur skyldi semja textann. Eftir mikla umhugsun skrifaði hann:
Líkaminn líkist visku tré
Hugurinn sem tær spegill
Hreinsaðu hann stöðugt
og láttu ekki ryk safnast.
Meistari Hong las ljóðið en var ekki hrifinn. Lærisveinarnir töldu ljóðið snilldarverk en Hong kallaði Shen á sinn fund og mælti: "Það sem þú skrifar sýnir að þú hefur ekki náð fullum skilningi. Þú stendur við dyrnar en þér hefur ekki tekist að koma inn. Haltu áfram að reyna."
Hui, ungur lærlingur sá ljóðið og skildi strax að það sýndi ekki fullan skilning. Hann skrifaði nýtt:
Í raun er ekkert visku tré
né tær spegill
Síðan allt er frá upphafi tómt,
Hvar á þá rykið að safnast?
Hong gerði Hui samstundis að eftirmanni sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2010 | 20:12
Bréf fyrir bjartsýnismenn
Metávöxtunarkrafa á grískum skuldabréfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2010 | 13:37
Blóma predíkun Buddha
Eittt sinn sem oftar tók Buddha lærisveina sína að tjörn þar sem hann var vanur að predíka. Venjulega talaði hann, en í þetta sinn stóð hann bara og sagði ekki orð. Eftir langa mæðu teygði hann sig í lotus blóm eitt sem óx í tjörninni. Hann tók blómið upp og sýndi lærisveinunum og þeir veltu fyrir sér merkingu þess.
Mahakashyapa, hló. Buddha sagði þá: "Ég hef sagt ykkur allt sem er hægt að segja. Það sem ekki er hægt að segja hef ég gefið Mahakashyapa". Upp frá þessu var ákveðið að Mahakashyapa skyldi verða arftaki Bhudda.
Þessi orðlausa predíkun var upphafið að Zen Buddhisma þar sem áhersla er lögð á að gefa fólki lykilinn að sannleikanum svo að það geti sjálft fundið hann en ekki segja fólki hver sannleikurinn er. Zen prestur kennir ekki staðreyndir, heldur kennir hann hvernig hver og einn getur á sinn hátt nálgast þær.
Sumt er einfaldlega ekki hægt að segja með orðum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2010 | 11:40
Sumarlægð á suðurhöfum
Ég skrifaði áður um skilamyndun í nágreni Nýja Sjálands. Nú eru skilin og tilheyrandi illviðri gengin yfir, en lægðin sem þeim fylgir hefur haldið áfram að dypka og veldur nú miklu hvassviðri suður í höfum. Eins og sjá má af þessari greiningu eru þrystilínur norðan við lægðina mjög þéttar. Lægðin er á þessu stigi um 943hPa djúp.
Vindur sem þessu fylgir er mikill í samræmi við það. Eins og sjá má frá þessari athugun frá gervitungli er stórt svæði þar sem vindurinn er sterkari en 50 hnútar. Þeir sem skoða svona kort oft vita að það er mjög sjaldgæft að sjá jafn stórt svæði með svo miklum vindi.
Svona fer þegar andstæðurnar í andrúmsloftinu verða mjög miklar, orkan sem leisist úr læðingi er gríðarleg og úr verður öflug lægð. Þessi lægð er miklu öflugri en sumarlægðir við Norður Atlandshaf og er ástæðan sú að andstæður heits og kalds lofts eru miklu minni á norðurhvelinu á sumrin en þær eru hér fyrir sunnan á sama árstíma. Hérna er jú Suðurskautslandið sem helst ískallt allt sumarið en því er ekki til að dreifa á norðurhvelinu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)